Ó. Johnson og Kaaber innleiðir AGR Innkaup
Elsta heildverslun Íslands, Ó. Johnson og Kaaber hefur ákveðið að innleiða hugbúnaðarlausnina AGR Innkaup til að sjá um innkaupa- og birgðarstýringu á vörum fyrirtækisins. ÓJ&K notar Microsoft Navision sem viðskiptakerfi, en AGR hefur mikla reynslu af innleiðingu og samþættingu AGR Innkaup við Navision kerfið. „AGR Innkaup er notendavænt og einfalt í notkun. Við búumst við því að kerfið muni einfalda starf innkaupamanna okkar gegnum sjálfvirkar innkaupatillögur, en einnig gerum við ráð fyrir að ná fram ákveðinni birgðalækkun með því að skoða söguleg gögn og gera nákvæmar söluspár.“ Segir Ólafur Ó. Johnson, framkvæmdarstjóri.
ÓJ&K rekur í dag öfluga heildsölu sem selur m.a. vörur til matvöruverslana, stóreldhúsa, mötuneyta og sælgætisverslana auk ýmissa sérverslana. Í dag vinna 36 manns hjá fyrirtækinu bæði í Reykjavík og á Akureyri. Fyrirtækið er umboðsaðili fyrir mörg þekkt vörumerki s.s. Colgate Palmolive, Del Monte, Melroses, Kiwi, Pågens, Tate&Lyle, Vilkó, Mömmu, Rúbín- , Braga - og Kaaber kaffi.




