AGR fær framhaldsstyrk hjá Tækniþróunarsjóði


Tækniþróunarsjóður samþykkti nýverið að veita AGR áframhaldandi styrk til þróunar á frumgerð hugbúnaðar sem hjálpar til við að gera söluáætlanir og miðla uppslýsingum um aðfangakeðjuna. Verkefnið heitir Nostradamus og hefur því verið veitt styrkur að upphæð 8 milljónir á ári. Áætlað er að verkefnið verði tvö ár í þróun, en það hófst árið 2008. „Markmið okkar er að þróa kerfi sem brúar bilið milli innkaupa- og söludeilda fyrirtækja, eykur áreiðanleika söluáætlana og skilvirkni í söluáætlanaferlinu.“ segir Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri AGR.

Verkefnið byggir á grunni þeirrar þekkingar og færni sem starfsmenn AGR hafa byggt upp í samvinnu við viðskiptavini sína á undanförnum árum ásamt þekkingu Háskólans í Reykjavík og erlendra samstarfsaðila. „Við höfum greint skýra þörf fyrir kerfi sem beitir svipaðri aðferðafræði við gerð söluáætlana og AGR-Innkaup byggir á. Markaðurinn er stór þar sem söluáætlanir eru mikilvægustu áætlanir flestrar fyrirtækja og vonumst við til að geta þróað byltingarkenndan hugbúnað fyrir þennan markað.“ segir Hlynur Stefánsson verkefnisstjóri.

    Viðskiptavinir okkar eru

       

image clockNæstu skref
    
    Um AGR
    Forgreining
    Hafðu samband