Frábær þátttaka á morgunverðarráðstefnu AGR
Þann 14. janúar síðastliðin hélt AGR morgunverðarráðstefnu um innkaupa- og birgðastýringu hjá íslenskum fyrirtækjum. Boðið var upp á léttan morgunverð áður en Dr Gunnar Stefánsson hélt áhugaverðan fyrirlestur nefndan „Gagnsæi og sveigjanleiki: lykill að nútíma vörustjórnun, en sérsvið Gunnars er meðal annars vörustjórnun og flutningafræði.
Einnig mætti Gísli Jónsson Innkaupastjóri hjá Johan Rönning og fjallaði um hvernig hann hefur nýtt sér frávikagreiningar í AGR Innkaup til að lækka birgarðkostnað og hækka veltuhraða. Að lokum kynntu Haukur Hannesson og Jóhann Guðbjargarson framkvæmda og þróunarstjóri AGR útgáfu 4.5 af AGR Innkaup, sem meðal annars innheldur Stjórnborðið. En það gefur notendum góða yfirsýn yfir lykilstærðir aðfangakeðjunnar.




