Frumtak fjárfestir í AGR

Frumtak hefur lokið annarri fjárfestingu sinni og fest kaup á hlut í AGR - Aðgerðargreiningu ehf.  AGR var stofnað árið 1998 í framhaldi af rannsóknarverkefnum við verkfræðideild Háskóla Íslands. Í nánu samstarfi við Rannís og Háskólann í Reykjavík hefur fyrirtækið undanfarin ár þróað aðferðir og hugbúnað fyrir alþjóðlegan markað. Helsta afurð fyrirtækisins er AGR Inventory Optimiser sem innleitt hefur verið hjá yfir 50 fyrirtækjum í 11 löndum. Grunnþróun AGR hefur alfarið farið fram hérlendis í samstarfi við fyrirtæki í vörudreifingu, framleiðslu og verslun. Kerfið framkvæmir söluspár fyrir hverja vöru og velur sjálfvirkt þá fræðilegu spáaðferð sem hentar best fyrir hverja vöru. Kerfið reiknar síðan út hversu miklar öryggisbirgðir fyrirtæki þurfa og leitast við að lágmarka það fé sem bundið er í birgðum en á sama tíma að eiga vöruna tiltæka þegar viðskiptavinurinn þarf á vörunni að halda.

 Helstu markaðssvæði AGR er í Evrópu með áherslu á Norðurlöndin, Bretland og Holland. Fyrirtækið rekur tvær skrifstofur undir merkjum AGR í Bretlandi og Danmörku en vinnur einnig náið með mörgum þekktum endursöluaðilum á meginlandinu s.s Microsoft og K3.

„AGR er vænlegur fjárfestingakostur fyrir Frumtak“ sagði dr. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks.  „AGR hefur náð miklum árangri í sölu birgðastýringalausna sinna.  Við væntum mikils af fyrirtækinu og erum sérstaklega áhugasamir að sjá fyrirtækið nýta sérþekkingu sína í sölu á bigðastýringalausnum á erlendum mörkuðum.  Þarna eru mikil tækifæri sem hægt er að nýta með því fjármagni sem fyrirtækið fær“.

„Eftir að hafa unnið undanfarin ár með mörgum af helstu innflutningsfyrirtækjum landsins hefur AGR byggt upp yfirgripsmikla þekkingu á sviði birgðastýringar. Við höfum einnig sannreynt að mikil þörf er fyrir slík kerfi erlendis þar sem fyrirtæki eru að glíma við nákvæmlega sömu vandamál og íslensk fyrirtæki. Það er því meiri eftirspurn eftir kerfinu í núverandi efnahagsástandi þar sem mikil pressa er á stjórnendum fyrirtækja að minnka bundið fé í birgðum. Það er ljóst að samstarf AGR og Frumtaks mun gera AGR kleift að auka áherslu á markaðssetningu og sölu á lausnum sínum”, sagði Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri AGR.

Frumtak er samlagssjóður í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, sex af stærstu lífeyris­sjóðum landsins og þriggja banka. Frumtak fjárfestir í nýsköpunar- og sprota­fyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar.  Markmið Frumtaks er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta. Frumtak fjárfestir í fyrirtækjum sem eru komin af klakstigi og er áskilið að fyrir liggi ítarlegar viðskiptaáætlanir.

    Viðskiptavinir okkar eru

       

image clockNæstu skref
    
    Um AGR
    Forgreining
    Hafðu samband