Skeljungur innleiðir AGR Innkaup
Skeljungur hefur ákveðið að innleiða innkaupa- og birgðastýringarkerfið AGR Innkaup. Markmiðið með innleiðingunni er að lækka birgðakostnað, koma í veg fyrir vantanir og auka alla sjálfvirkni í innkaupaferlinu. AGR Innkaup mun tengjast Concorde, viðskiptakerfi Skeljungs, og sækja þangað gögn um sölu- og birgðasögu og framkvæma söluspár á öll vörunúmer. Kerfið birtir síðan innkaupatillögur byggðar á þessum söluspám, sem lágmarka birgðahaldskostnað og vantanir.
Með þessu samkomulagi bætist Skeljungur í hóp fjölmargra innlendra og erlendra fyrirtækja sem nota hugbúnaðinn AGR Innkaup, en kerfið hefur verið innleitt hjá yfir 60 fyrirtækjum í um 19 löndum. Meðal viðskiptavina eru LeCreuset, Pets at Home, JYSK, Wurth, Aðföng, ÁTVR, Húsasmiðjan, Johan Rönning, MS og mörg fleiri.
![]()



